VÖNDUÐ SMÍÐAVINNA FRÁ TRAUSTU TEYMI
Fagmennska, hraði og snyrtilegur frágangur
Við sinnum fjölbreyttri smíðavinnu og leggjum áherslu á að skila hverju verki af okkur með góðum frágangi og faglegum vinnubrögðum. Hvort sem um er að ræða nýjan pall, skjólveggi, garðhús eða verkefni innandyra, þá mætum við skipulögð til verks og vinnum hratt og vel.
- Við tökum helst að okkur pallasmíði, skjólveggi, garðhús og ýmis konar innismíði fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki.
- Hjá okkur starfa sex lærðir smiðir frá Litháen sem eru reynslumiklir, vinnusamir og slóra ekki. Við leggjum mikla áherslu á mætingu, afköst og að verkið gangi vel frá upphafi til enda.
- Við getum bæði unnið eftir tíma og efni eða gert tilboð í stærri og skýr verkefni. Markmiðið er alltaf það sama: sanngjarnt verð, góð samskipti og smíðavinna sem lítur vel út og endist.
AF HVERJU AÐ VELJA OKKUR?
6 lærðir smiðir
Öflugt teymi sem mætir tilbúið til verks
Vönduð vinnubrögð
Fagleg smíðavinna og snyrtilegur frágangur
Fjölbreytt verkefni
Pallar, skjólveggir, garðhús og innismíði
Tímavinna eða tilboð
9.500 kr. + vsk á tímann eða fast verð eftir verki
Fáðu tilboð í smíðavinnu fyrir þitt verkefni
Hafðu samband og við förum yfir verkið með þér án skuldbindingar.
Senda fyrirspurn →