GARÐÞJÓNUSTA REYKJAVÍKUR Fá tilboð →

STOÐVEGGIR
OG HLEÐSLUR

vandaðar lausnir með Magnum og Recon steinum fyrir lóðir, plön og stærri frágang

Við sérhæfum okkur í stoðveggjum og hleðslum fyrir heimili, húsfélög og verktaka. Við vinnum mikið með Magnum steina frá BM Vallá og Recon steina frá Steypustöðinni og leggjum áherslu á rétta uppbyggingu, góðan grunn, dren og örugga festingu þar sem aðstæður krefjast þess. Markmiðið er að skila veggjum sem standa vel, líta vel út og henta álagi og aðstæðum á hverjum stað.

STOÐVEGGIR OG HLEÐSLUR SEM STANDA VEL TIL FRAMBÚÐAR

Vönduð vinna og veggir sem eru byggðir til að endast.

Stoðveggur þarf að vera rétt byggður frá grunni til að haldast stöðugur til lengri tíma. Uppbyggingin undir veggnum skiptir þar mestu máli. Undirlagið, púðinn undir veggnum, burðarlagið og dren fyrir aftan vegginn eru allt atriði sem þurfa að vera rétt framkvæmd. Ef þessi atriði eru ekki í lagi getur jarðvegur, vatnssöfnun og frost með tímanum haft áhrif á stöðugleika veggsins. Við erum reynslumiklir í byggingu stoðveggja og hleðslum og vinnum mikið með Magnum og Recon hleðslusteina ásamt öðrum hleðslulausnum. Markmiðið er alltaf að byggja veggi sem eru traustir, standast íslenskar aðstæður og passa vel við lóðina og umhverfið.

  • Við byrjum á að fara vel yfir verkefnið og meta aðstæður á staðnum. Þar skoðum við hæðir, jarðveg, álag, aðkomu og hvað veggurinn þarf að gera. Við vinnum mikið með Magnum og Recon steina, en einnig aðrar hleðslulausnir eftir því hvað þér finnst fallegast og hentar best fyrir þína lóð.
  • Grunnurinn skiptir mestu máli. Við sjáum um uppgröft, setjum rétt burðarlag og gerum góðan púða undir fyrstu röð steina svo veggurinn sitji rétt frá byrjun. Fyrsta röðin ræður miklu um það hvernig veggurinn byggist upp og hversu vel hann heldur sér með tímanum.
  • Mikilvægt er að hafa gott dren og rétta bakfyllingu aftan við vegginn ef veggnum er ætlað að bera mikinn jarðveg. Rétt frárennsli minnkar vatnsþrýsting á vegginn og hjálpar honum að halda stöðugleika. Ef veggur er ekki nægilega sterkur eða frárennsli ekki rétt uppbyggt getur vatn, frost og þungi jarðvegs með tímanum þrýst á vegginn og haft áhrif á stöðugleika hans.
  • Í verkefnum þar sem veggir eru háir eða þurfa að bera mikinn jarðveg metum við einnig hvort þörf sé á akkerum, boltun í klöpp eða öðrum festingum til að tryggja að veggurinn haldist öruggur til lengri tíma.

AF HVERJU AÐ VELJA OKKUR?

Reynsla af stoðveggjum

Við kunnum uppbygginguna á bak við veggi sem eiga að standa vel

Réttur grunnur

Burðarlag, púði, dren og fyrsta röð unnin af nákvæmni

Rétt lausn á réttum stað

Við metum hvort Magnum, Recon eða önnur útfærsla henti best

Traust framkvæmd

Skýr samskipti, snyrtileg vinna og veggir byggðir með langtímaendingu í huga

Fáðu frítt tilboð í stoðvegg eða hleðslu fyrir þitt verkefni

Hvort sem þú þarft lítinn stoðvegg við lóðina eða stærri hleðslu sem þarf að bera meiri þunga, þá förum við yfir aðstæður með þér og finnum rétta lausn fyrir verkefnið.

Senda fyrirspurn →